|
|
|
|
|
Hér bloggar Brynja....

þegar hún nennir.....
|
|
|
|
|
föstudagur, febrúar 04, 2005 :::
Bloggið mitt er flutt...
http://www.blog.central.is/bryhja
Endilega lítið við :)
Gerði verstu prentvillu sunnan heiða þegar ég setti slóðina inná nýja bloggið hér og það tók mig ár að fatta það..oboy!
:::Brynja 2/04/2005 01:16:00 AM
mánudagur, febrúar 02, 2004 :::
Mál er að blogga. Annars var ég að rúlla yfir bloggin í gær og hugsa með mér hvað þetta bloggkjaftæði væri nú hundandskotileiðinlegt. En ég er eins og áður hefur verið sagt, ekki ólík Marteini Mosdal, kem alltaf aftur. Tóta vinkona kom í gærkvöldi og kippti mér með sér á Players í kaffi og spjall. Þar var ekki mikið um að vera á sunnudagskvöldi annað en nokkrir karlar að glápa á boltann. Og svo var þarna einn íslenskur svíi. Hann var nú léttur á því og talaði mikið um hvað íslenskt fólk væri miklir dónar á skemmtistöðum. Svona væri þetta nú ekki í Svíþjóð. Blablabla.....kann að vera satt en þegar hann var farinn að vera með sýnikennslu á dónaskap íslendinga, á lærinu á mér þá stóðum við Tóta upp og þökkuðum fyrir spjallið.
:::Brynja 2/02/2004 07:38:00 PM
þriðjudagur, desember 09, 2003 :::
Fékk þessa líka. Blessuð börnin klikka ekki.
Þessi jólasaga er ritgerð eftir barn í grunnskóla og er um Jesús frá
sjónarhóli barna.
Sá sem hefur orðið frægastur úr Biblíunni er Jesús. Hann var frá
Nazaret í Egyptalandi. Hann fæddist á jólanótt í fjósi, vegna
þess að öll hótel voru full. Mamma hans hét María og stjúppabbi
hans Jósef. Hann var ekki raunverulegur pabbi Jesú, því María var
áður gift einhverjum Gabríel, en hann var floginn í burtu. Þegar
Jesús var nýfæddur áttu þrír jólaveinar leið fram hjá fjósinu og
þegar þeir sáu litla barnið, náðu þeir í nokkrar jólagjafir og
reykelsi handa hjónunum, en það veitti sannarlega ekki af þar sem
þau höfðu ferðast allan daginn á asna, af því að það átti að telja
þau.
Jesús var ekki skírður fyrr en seinna, því í þá daga voru börnin
ekki skírð fyrr en þau voru orðin fullorðin og höfðu lært að synda,
því þau voru nefnilega alveg færð í kaf. Þegar Jesús varð átta ára
gaf pabbi hans honum Biblíu, og þegar hann var tólf ára kunni hann
hana utan að, og það var vel af sér vikið, því í þá daga var
Biblían svo stór að það varð að vefja hana upp á kefli. Hann var
líka duglegur að læra sálma. Hann gat galdrað þegar hann var bara
smá strákur. Hann var reyndar mesti galdramaður sem uppi hefur
verið.
Jesús var mjög sérstakur. Hann gekk um og lagði gátur fyrir fólk
sem það átti að reyna að leysa, en það tókst sjaldan. Hann gat
líka gengið í gegnum vatn og eld, án þess að það kæmi við hann.
Hann gat líka gengið á vatninu. Það var á Genezaretvatni, þar sem
hann gekk út að fiskibáti til kaupa fisk. Pabbi minn segir að það
hafi verið ís á vatninu, en hann trúir heldur ekki á Guð og Jesú.
Jesús gerði líka mikið fyrir umferðina. Einu sinni þegar hann var
á gangi í Jerúsalem, mætti hann lömuðum manni sem lá í rúminu sínu
úti á miðri götu, Jesús sagði ; Tak sæng þína og gakk. Maðurinn
gerði það og þá gátu bílarnir aftur komist leiðar sinnar. Svo var
það ekkja sem átti son, en ég bara skil ekki hvernig hún gat átt
hann fyrst hún var ekkja. Jesús tók son ekkjunnar í
kraftaverkameðferð og við það varð hann mjög vitur, sagði fólk.
Eitt af því merkilegasta sem Jesús gerði var að stjórna borðhaldinu
í eyðimörkinni. Það var þegar þessar 5 þúsund manneskjur stóðu
aleinar úti í eyðimörkinni án þess að eiga vott né þurrt. Þá gerði
Jesús kraftaverk og allir fóru saddir í rúmið. Jesús gat ekki
allaf komið fram í eigin persónu. Stundum var hann dulbúinn sem
hirðir, og einu sinni kom hann fram undir fölsku nafni
:::Brynja 12/09/2003 01:40:00 PM
Ég fékk þetta í tölvupósti áðan. Langt síðan ég hef hlegið svona rosalega. Grunar að þetta sé stolið af femin.is og allir sjálfsagt búnir að sjá það. En fyndið var það.
En hér kemur ein sem er bæði hallærisleg og rosalega neyðarleg af sjálfri mér.
Er nú ekki alveg viss hvort ég ætti að láta hana fjúka...jú jú.
Sko einu sinni var ég á einhverju heilsufæði sem samanstóð af alls konar baunum...og aukaverkanir af því voru þær að vindgangurinn var rosalegur og hrikalega illa lyktandi...ætla ekki að lýsa honum hér..læt ykkur um að ímynda ykkur þann fnyk!!!
En hvað um það..á laugardagsmorgni þarf ég að bregða mér í Bónus..kallinn vildi bara bíða í bílnum þar sem ég þurfti ekki að gera nein stórinnkaup. En röðin var rosalega löng og ég þurfti að bíða lengi lengi...og mér var mál að leysa vind. En auðvitað gerir maður það ekki í röð í Bónus...svo ég hélt enn fasta í mér..og var gjörsamlega orðin viðþolslaus þegar það var loksins komið að mér...hrúgað vörum í pokann og nánast henti peningunum í kassadömuna.
Hljóp svo út eins hratt og ég komst..hentist inn í bílinn hjá kallinum mínum..og prumpaði og prumpaði og gaf svo frá mér feginsandvarp og sagði hátt...AHHHH..ÞETTA VAR GOTT....um leið og ég snéri mér að kallinum mínum til að útskýra þrautagöngu mína í Bónus.
Stelpur..ég hélt að það myndi líða yfir mig...þegar ég leit á hann og sá að ég var í vitlausum bíl....og maðurinn sem sat við stýrið var ekki maðurinn minn...heldur einhver allt annar kall sem var greinilega að kafna úr skítafílu OG HAMAÐIST VIÐ AÐ SKRÚFA NIÐUR RÚÐUNA SÍN MEGIN.
Ég hélt ég myndi deyja...tautaði einhver afsökunarorð...og tróðst svo bara út úr bílnum..og aumingja maðurinn sagði ekki orð..var líklega alveg að kafna og greinilega skíthræddur við þennan ruglaða prumpustamp.
Ég fæ enn illt í magann þegar ég skrifa þetta..og verð rjóð í vöngum af skömm
Ég ætla ekki einu sinni að kvitta undir þessa sögu.....goshhhh!!!!
:::Brynja 12/09/2003 01:38:00 PM
Það er greinilegt að blogger tekur til sinna ráða þegar lítið er skrifað og útskúfar manni úr bloggheimum. Það verður bara að hafa það.
:::Brynja 12/09/2003 01:35:00 PM
föstudagur, nóvember 07, 2003 :::
Jæja ég fór í Rúmfatalagerinn í dag og jólin eru sko komin þar. Mér finnst nú pínu gaman að sjá jólin því ég eyddi þeim síðustu á kafi í klósettinu eins og sjálfsagt einhverjir muna. Mér er líka lífsins ómögulegt að muna hvað ég gaf fólki í jólagjöf eða frá hverjum ég fékk jólakort. Efast meira að segja um að ég hafi sent einhver. Hefur ykkur einhvern tíman liðið þannig að þið hafið bara viljað sofa í nokkra mánuði án þess að vakna aftur? Þannig var síðasti vetur hjá mér og ástæðan: Jú fyrir þá sem ekki vita þá var ég ólétt. Hafði áhyggjur af því að mér yrði flökurt af því að sjá jólaskraut því mér verður óglatt ef ég finn lykt af sjampóinu sem ég notaði í fyrra. En engin jólaógleði ennþá. Mér er hins vegar orðið hálf bumbult af því að rifja upp alla þessa ógleði. Kannski er ég bara ólétt !
:::Brynja 11/07/2003 12:33:00 AM
Mér finnst þetta blogg hörmulegt á litinn. Letrið allt í fokki og allt meira og minna bilað líka. Ég meina það. Er einhver sem kemur hér og les þetta rugl? Maður spyr sig. Ég er þó ekki ein af þeim sem fer á fjöll til að finna sig. Nú eða mig. Enda held ég að ég sé ekkert týnd. Eða hvað? Aftur verður maður að spyrja sig. Er ég týnd?
:::Brynja 11/07/2003 12:27:00 AM
þriðjudagur, október 28, 2003 :::
Ekki veit ég hvaða dauðans hálfviti fann upp straujárnið. Ef það er eitthvað sem mér þykir verulega leiðinlegt þá er það að strauja. Til dæmis þá á ég kingsize rúm sem er nokkurn vegin það eina sem er kingsize í mínu svefnherbergi. Nema ef vera kynni ég. Jú helvítis pífulakið sem umlykur rúmið til að fela rammadraslið sem það stendur á er líka kingsize. Og þetta fjárans lak þarf að þvo annað slagið og svo kemur til kasta straujárnsins. Mamma var svo góð að gefa mér þetta þarfaþing þegar ég átti hann Gunnar minn sem er á fimmtánda ári. Og blessaður strauboltinn sem bæði gleypir vatn og þrusar svo úr sér gufu er alveg eins og nýr ennþá. Vegna þess að ég hata hann. Það er ekki ofsögum sagt að ég geri ekkert leiðinlegra en að strauja svo það komi aftur fram. Ég var að berjast við kvikindið í kvöld og reyna að slétta pífudrusluna sem lafir svo skemmtilega niður á gólf og þvælist alltaf fyrir þegar ég er að skúra. Ég sá mér leik á borði og straujaði sko bara það sem sést en ekki það sem lendir undir dýnunum. Hverjum er líka ekki sama hvort svona lök eru rennislétt þar sem þau sjást ekki, eða ekki.
Ég segi nú bara ekki annað en það að sem betur fer hafði ég vit á að giftast ekki einhverjum snobbuðum karlmanni sem gengur alla daga í stífpressuðum skyrtum. Það væri sko skilnaðarorsök númeró únó. En sem sagt. Eftir mína daga erfir einhver nánast ónotaðann straubolta frá Brown
:::Brynja 10/28/2003 11:46:00 PM
þriðjudagur, október 21, 2003 :::
Æi hvað mér leiðist þetta haustveður. Maður er ekki fyrr búinn að skrúfa skjálfandi alla ofna í botn sökum kulda að þá hlýnar aftur úti. Og þá er annað hvort að lækka aftur á ofnunum eða fara úr öllum fötunum og eiga það á hættu að renna á rassinn í einhverjum svitapollinum á gólfinu. Til dæmis fór ég út að labba í gær með snúlluna mína í vagninum. Ég klæddi mig eins og mér sýndist eiga að gera sökum veðurs en hafði ekki hlustað á veðurspá fyrir daginn og vissi þar af leiðandi ekki að það var skítkalt. Sólin skein og allt virtist svo hlýtt og gott. Þegar ég var komin að Nóatúni var mér svo kalt á hægra eyranu að ég þorði ekki að snerta það af ótta um að brjóta það hreinlega af. Svo frosið var það. En það þiðnaði á göngu um Nóa og það sem eftir var dags var mér sjóðandi heitt á því. Svo maður spyr sig hvort ekki sé rétt að eiga góða húfu. Ég er bara svo ferlega asnaleg með húfu. Asnalegri á ég við.
:::Brynja 10/21/2003 10:59:00 AM
miðvikudagur, október 15, 2003 :::
Æi mér finnst þessi svo leiðinlegur.
 STAND UP: You are a natural stand-up comedian. You watch the news with people, and when you give your opinions, people start laughing. They are not laughing at you, they are laughing because what you say is so TRUE. The world is a very funny place, full of natural comedy. All you do is repeat various humorous things that you notice from everyday life. Your unique perspective on the world is what makes you so funny. Of all the various comedy types, you may be the funniest of them all!
PREMIUM COMEDY OF YOUR TYPE IS WELCOMED AT:
href="http://pub98.ezboard.com/bkickbanned">http://pub98.ezboard.com/bkickbanned
How funny are you? brought to you by Quizilla
:::Brynja 10/15/2003 04:52:00 PM
laugardagur, október 04, 2003 :::
8 ára sonur minn kom inní svefnherbergi til mín kl 8 í morgun og spurði mig hvort hann mætti fara út. Ég hélt nú ekki. Klukkan væri bara 8. Hverslags gauragangur þetta væri eiginlega. "Mig langar svo út í snjóinn áður en hann fer" Ég skondraðist uppúr rúminu og kíkti út. Viti menn. Það var hvít jörð. Brrrr...mér varð bara kalt við þessa sjón og skaust undir sæng aftur en guttinn fór út. Kom svo korteri seinna og bað mig að rétta sér veskið sitt því hann ætlaði nefnilega í Nóatún á nammibarsútsöluna sem er alla laugardaga. Ég benti honum á að klukkan væri rétt 8 og Nói opnaði ekki fyrr en kl 10. Ó...var svarið sem ég fékk. Mikið er nú gott að vera 8 ára og áhyggjulaus. Annars er ég alltaf syfjuð þessa dagana. Það er alltaf einhver sem vekur mig þegar ég sef. Ef það er ekki ungabarnið þá er það miðbarnið eða elsta barnið. Eða eiginmaðurinn. Bara svona að tékka hvort ég vilji nokkuð vakna og kannski elda kvöldmat eða eitthvað. Litla dóttir mín er ekki að gúddera að vera hjá karlpeningnum á þessu heimili og verður alveg snar ef ég er ekki í augnsýn. Úff hvað maður er orðinn eitthvað gamall og þreyttur. Stundum allavega :o)
:::Brynja 10/04/2003 02:31:00 PM
föstudagur, október 03, 2003 :::
Ég er alltaf góð við gamlar konur :o)
Lítil gömul kona kom í Nóatún og setti 2 dósir af dýrasta kattarmatnum sem
til var í innkaupakörfuna. Síðan fór hún að kassanum
til að borga og sagði við kassadömuna "ekkert nema það besta handa litla
kettlingnum mínum".
Kassadaman sagði þá
"Því miður get ég ekki selt þér kattarmat nema að þú
getir sannað það að þú eigir kettling, það er svo mikið
af gömlu fólki sem kaupir kattarmat til að borða sjálft, verslunarstjórinn
vill fá sönnun þess að þú eigir kött."
Litla gamla konan fór heim og náði í kettlinginn sinn og sýndi kassadömunni
og fékk þá kattarmatinn keyptan.
Næsta dag fór litla gamla konan aftur í Nóatún og í þetta skiptið setti
hún pakka af hundakexi í innkaupakörfuna, sem hún ætlaði að
gefa hundinum sínum yfir jólin. Kassadaman sagði þá
"því miður get ég ekki
selt þér hundakex nema að þú getir sannað það að þú
eigir hund, það er svo mikið af gömlu fólki sem kaupir hundakex til að
borða sjálft, verslunarstjórinn vill fá sönnun þess að þú eigir hund."
Vonsvikin og svekkt fór litla gamla konan heim og náði í hundinn sinn og
sýndi kassadömunni og fékk þá hundakexið keypt.
Daginn eftir kom litla gamla konan aftur í Nóatún og hélt á dollu sem var
með gati á lokinu. Litla gamla konan bað kassadömuna að
stinga puttanum í gatið, "nei ég geri það ekki því þú gætir verið með snák
í dollunni." Litla gamla konan fullvissaði kassadönuna um að
svo væri ekki. Þá stakk kassadaman puttanum í gatið á dollunni og tók
hann út og sagði við litlu gömlu konuna
"Þetta lyktar eins og mannaskítur."
Litla gamla konan brosti út að eyrum og spurði, "vina mín get ég núna
fengið að kaupa nokkrar klósettrúllur?"
:::Brynja 10/03/2003 09:55:00 PM
laugardagur, september 27, 2003 :::
Lét undan þrýstingi fjölda manns og setti upp síðu á barnalandi fyrir Hörpu.
Endilega skoðið.
:::Brynja 9/27/2003 07:48:00 PM
fimmtudagur, september 25, 2003 :::
Það er búið að vera skítaveður undanfarið eins og flestir vita. Það er alger óþarfi að skella kulda og skít á mann svona surprice! Ég þurfti að fara í bæinn og heimsækja nunnurnar því það á að fara að skíra litlu Hörpu Rún og mig vantaði kerti af því tilefni. Svona skrautskrifað skiljið þið? Og nunnurnar í Hafnarfirði eru snillingar í að búa til svoleiðis. Það er ekki í frásögur færandi að ég lenti í fyrsta snjó vetrarins sem er ekki einu sinni kominn og var auðvitað ekki á píkum eins og frændur vorir færeyingarnir segja og satt að segja hélt ég að ég dræpist úr hræðslu á leiðinni heim. Krapadrulla og ógeð. Bílar útaf og að sjálfsögðu einn og einn hálfviti sem keyrði eins og hann ætti Hellisheiðina skuldlausa og auða í þokkabót. En allt hafðist þetta, Guði sé lof og heil komumst við heim. Svo þarf ég að sækja kertið í næstu viku og ætli ég lendi þá ekki í öðru eins? Ég panta hér með rigningu í vetur eins og í fyrra. Mig minnir allavega að það hafi verið mjög dimmt og blautt en það má segja að ég hafi sofið allan fyrravetur af mér sökum afleitrar heilsu á meðgöngunni. Vá hvað ég fíla mig eitthvað fúlt í dag
:::Brynja 9/25/2003 10:04:00 PM
þriðjudagur, september 09, 2003 :::
Það virðist bara vera að ég sé alltaf úti að labba. Það er auðvitað ákaflega umhverfisvænt að nota lappirnar á sér til þeirra hluta svo ekki sé talað um heilsusamlegt. Við Harpa Rún og viðhengið mitt vorum að rölta hérna um í gærmorgun og þegar við vorum á heimleið fann ég allt í einu eitthvað flykki smella á fésinu á mér. Ég rak upp myndarlegt öskur og dansaði einhvern undarlegan stríðsdans til að losa kvikindið af andlitinu á mér og taldi víst að þetta væri geitungur í árásarham. Þegar mér tókst loksins að sjá hvað þetta var og ná áttum heyrði ég hrossahlátur í eiginmanninum og sá hvar hann rúllaði um af hlátri. Ég hafði nefnilega orðið fyrir árás laufblaðs. Þau hljóta að geta verið stórhættuleg.
:::Brynja 9/09/2003 11:42:00 PM
|
|
|
|